Monday, July 2, 2012

Vikan í Verona Þriðjudagur- 3 dagur í Verona Farið var snemma af stað og götur og verslanir skoðaðar. Seinnipartinn átti að spila á aðaltorgi Verona en eftir að Baldur þræddi allar skrifstofur Veronaborgar fannst ekki leyfið sem sótt var um og það eina sem yfirvöld buðu okkur var að sækja um nýtt leyfi sem yrði svarað innan 60 daga :) En við gerðum okkur glaðan dag í staðinn og fórum í skoðunarferð um borgina. Miðvikudagur  Sundferð í borginni. Sundlaugar í Verona eru sérstakar og eru reglurnar mjög svo strangar. Allaveganna er eins og sundlaugaverðir fái borgað eftir hve oft þeir blási í flauturnar. Allir sem ætluðu ofan í laugina þurftu að vera með sundhettu og einnig í löggildum sundfötum, einn drengurinn mætti í stuttbuxum og mátti því ekki fara ofan í. Um kvöldið snæddum við öll saman í boði Fiskmarkaðs Íslands :) Fimmtudagur Fótboltadagur! Enn voru sumir verslunarþyrstir en svo fórum við og skoðuðum svalirnar hjá hinni einu sönnu Júlíu og snertu flestir brjóst hennar en það á að færa manni gæfu í lífinu.  Svo var hringleikahúsið skoðað og þetta rúmlega 2000 ára leikhús var mjög heillandi og gaman að ímyndar sér gladiatoranna skylmast á sviðinu. Um kvöldið var horft á undanúrslit EM þar sem Ítalir tryggðu sér stórkostlegann sigur á þjóðverjum. Við borðuðum saman pizzu í boði Sæból ehf :) Svo var labbað heim um kvöldið og stemningin skemmtileg á götunum. Föstudagur Afslöppun og sofið út. Eftir langa labbdaga var sofið út og slappað af á Ostello Verona. Morgunmaturinn var um 11 leytið og var svo hádegisverður um 2 en hann var í boði Hótel Framnes :) Í rólegheitunum var pakkað niður og gert klárt fyrir brottför til Rimini. Seinnipart dagsins spiluðum við í garðinum við Ostello en það var mjög heitt í veðri og fannst mörgum erfitt að spila en gestir sem hlýddu á sveitina spila voru mjög hrifnir.  Laugardagur 5 foreldrar kvöddu hópinn og héldu heim til Íslands. Rútuferð til Rimini var næst á dagskrá. Lagt var af stað um 10 og Seidi (sæti) var nafnið á bílstjóranum okkar. Rosaleg umferð var á leiðinni og tók ferðin rúma 6 klukkutíma en átti að vera 4 til 5 tímar. Eftir mikla leit fannst loksins hótelið okkar. Þreyttir ferðalangar fengu dálítið sjokk þegar komið var inn á herbergin en plásið er alls ekki mikið þar inni. Hótelið er þó vel staðsett, með goðum svölum og brosmildu starfsfólki en eigendur hótelsins minna óneitanlega á Finna og Höllu á krákunni :) Eftir að hafa komið sér fyrir var labbað aðeins niðrá strönd en hún er stutt frá og mjög snyrtileg og fín. Svo var borðað um kvöldið í boði Snæís :) Um kvöldið var farið strandblak Sunnudagur - Úrslit í EM!!! Flestir sváfu vel og komu sér snemma á ströndina, auðvitað var farið í verslanir um miðjan dag og kom liðið sér fyrir hér og þar og horfði á úrslitaleikinn en ekki fór hann vel :(